Þann 30 apríl næstkomandi verður haldin sameiginleg vorráðstefna fagfélaganna ÍMARK, Ský, Stjórnvísi, Mannauðs og FVH.
Ráðstefnan ber yfirskriftina Mótum framtíðina saman og verður haldinn á Hilton Reykjavík Nordica og inniheldur fjölbreytt erindi úr íslensku atvinnulífi.
Dagskrá:
Ráðstefnustjóri: Þórey Vilhjálmsdóttir, framkvæmdastjóri og stofnandi Öldu
14:00 Velkomin
14:00 Tæknivædd tunga: hagnýting máltækni í daglegu lífi- Linda Heimisdóttir, framkvæmdastjóri Miðeindar
Það er óhætt að segja að bylting hafi orðið í máltækni á undanförnum árum með tilkomu tauganeta og spunagreindar. Þótt íslenska sé pínulítið tungumál eru nú fjölmargar lausnir í boði fyrir íslenska málhafa. En hvernig nýtist þessi tækni í daglegu lífi og hvað þarf helst að varast?
14:20 Hvernig getur vinnuaðstaðan mótað hegðun starfsmanna? Matthías Ásgeirsson, ráðgjafi í aðstöðustjórnun VSÓ
„We shape our buildings, thereafter they shape us“, eru fræg orð Winston Curchill í seinni heimsstyrjöldinni þegar ákveða átti hvernig ætti að endurbyggja þinghúsið í Englandi – þau gefa ágætis hugmynd um innihald kynningarnar. Það má segja að megin tilgangur vinnuaðstöðunnar sé hýsing viðskiptaferla sem starfsfólk vinnur eftir. Fjallað verður um áhrif vinnuaðstöðunnar á bæði skilvirkni ferla og ánægju starfsfólks. Hvernig upplifun á aðstöðunni er lykilþáttur í vinnustaðamenningu. Hvernig hönnun og umsjón á henni getur haft ráðandi áhrif á vinnuframlag starfsmanna og þar með afkomu fyrirtækja.
14:40 Markaðssetning á móti risum- Hjördís Elsa Ásgeirsdóttir, markaðsstjóri Indó
Hvernig kom lítill sparisjóður með stór markmið inn á markað til að hrista upp í honum?
Sparisjóðurinn indó opnaði 30. janúar 2023 og hefur hrist upp í markaðnum með því að bjóða upp á gagnsæja og sanngjarna bankaþjónustu sem er skemmtileg og laus við allt bull. Í dag hafa yfir 50.000 Íslendinga opnað reikning í indó og tíunda hver kortafærsla er nú greidd með indó korti.
15:00 Kaffihlé
15:20 Mikilvægi menningar- Andri Þór Guðmundsson forstjóri Ölgerðarinnar
Forsenda þess að fyrirtæki nái markmiðum sínum er að menning fyrirtækisins styðji við stefnu þess. Ölgerðin hefur náð miklum vexti á undanförnum áratugum með árangurdrifinni og jákvæðri menningu.
15:40 Út úr boxunum, inn í óvissuna: Mannauður í breyttum heimi- Rúna Magnúsdóttir leiðtogamarkþjálfi
Í þessu erindi munum við skoða afleiðingar mannlegrar hegðunar um það hvernig samfélagið og við sjálf höfum pakkað okkur og öðrum inn í ósýnileg box sem halda aftur af okkur í lífi og starfi. Við kynnumst einföldum og áhrifaríkum leiðum til að kíkja ofaní boxin, opna þau og endurröðum með gleðina og framsýni að leiðarljósi.
16:00 Skálum saman fyrir framtíðinni og tengjumst!
Léttar veitingar og tengslanetið stækkað í góðra vina hópi.
18:00 Partýið búið - haldið saman út í vorið!
Ráðstefnan er aðeins opin félagsmönnum ÍMARK, FVH, Ský, Stjórnvísi og Mannauðs.
Miðaverð: 10.990 kr.
Skráning fer fram hér.