Samtök íslenskra auglýsingastofa (SÍA) bera ábyrgð á gagnasöfnun fyrir íslenskan markað í alþjóðlegri könnun sem framkvæmd er af rannsóknarfyrirtækinu Kantar, fyrir hönd EACA, WFA (Alþjóðasamtök auglýsenda) og tengdra félaga þeirra.
Könnunin er mikilvægur þáttur í þeirri vinnu SÍA að efla tengsl og faglegt samstarf milli íslenskra auglýsingastofa og viðskiptavina þeirra.
„Við hjá SÍA vitum að auglýsingastofur á Íslandi standa framarlega á mörgum sviðum. Þessi könnun mun veita okkur dýrmæta innsýn í það hvernig við getum gert enn betur og komið enn betur til móts við væntingar viðskiptavina okkar,“ segir Anna Kristín Kristjánsdóttir, formaður SÍA.
Könnunin er sérstaklega mikilvæg fyrir íslenskan markað þar sem hún býður upp á einstakan samanburð við evrópskar auglýsingastofur, stórar sem smáar.
Niðurstöðurnar veita íslenskum auglýsingastofum og markaðsfólki mikilvæga innsýn í stöðuna á evrópskum samanburði og styrkja þannig samkeppnishæfni íslensks markaðar á alþjóðavettvangi.
Öll svör eru algjörlega nafnlaus og órekjanleg.