Hvaða fyrirtæki verður markaðsfyrirtæki ársins 2022?

Nú stendur yfir val á markaðsfyrirtæki ársins 2022 en ÍMARK, samtök markaðsfólks á Ísland hefur veitt Markaðsverðlaunin frá árinu 1991. 

Markmið verðlaunanna er að stuðla að, og verðlauna, fagmennsku í markaðsstarfi fyrirtækja. Félagsmenn, dómnefnd og stjórn ÍMARK hafa kost á því að senda inn tilnefningar fyrirtækja sem talin eru hafa staðið sig vel í markaðsmálum undanfarin 2 ár.  Í kjölfarið hafa tilnefnd fyrirtæki kost á því að sækja um þátttöku í verðlaununum og senda þá inn tilheyrandi gögn sem dómnefnd á vegum ÍMARK fer yfir. Af þeim fyrirtækjum sem senda inn gögn eru tilkynnt efstu fimm fyrirtækin og af þeim mun dómnefnd skera úr um hvert þeirra ber sigur úr bítum og fær titilinn markaðsfyrirtæki ársins. Viðkomandi fyrirtæki hlýtur nafnbótina í tvö heil ár sem þar sem verðlaunin eru veitt annað hvert ár á móti markaðsmanneskju ársins.

 

Verðlaunin eru veitt fyrirtækjum sem hafa verið áberandi í markaðsmálum á tímabilinu og sannað sýnilegan árangur af markaðsstarfi þeirra. Við ákvörðun um verðlaunahafa er tekið mið af fagmennsku í markaðsstarfi og að fjárhagslegt öryggi sé til staðar.

 

Nú hefur verið opnað fyrir tilnefningar og tökum við á móti tilnefningum til 8. nóvember næstkomandi. Að tilnefningartímabili loknu hefur dómnefnd störf og velur efstu fimm fyrirtækin sem dómnefnd aflar ítarelgri gagna um ásamt því að fyrirtæki fær tækifæri til að kynna sitt markaðsstarf ítarlega fyrir dómnefnd. 

 

Dómnefndin er skipuð fulltrúum úr stjórn ÍMARK, atvinnulífinu og háskólasamfélaginu með þverfaglega þekkingu og reynslu í huga.


Dómnefndin verður kynnt á næstu dögum.

Share by: