Dómnefnd skipuð fyrir markaðsfyrirtæki ársins

Nú stendur yfir val á markaðsfyrirtæki ársins 2022 en ÍMARK, samtök markaðsfólks á Ísland hefur veitt Markaðsverðlaunin frá árinu 1991.

Markmið verðlaunanna er að stuðla að og verðlauna, fagmennsku í markaðsstarfi fyrirtækja. Félagsmenn, dómnefnd og stjórn ÍMARK hafa kost á því að senda inn tilnefningar fyrirtækja sem talin eru hafa staðið sig vel í markaðsmálum undanfarin 2 ár.  Í kjölfarið hafa tilnefnd fyrirtæki kost á því að sækja um þátttöku í verðlaununum og senda þá inn tilheyrandi gögn sem dómnefnd á vegum ÍMARK fer yfir.


Af þeim fyrirtækjum sem senda inn gögn eru tilkynnt efstu fimm fyrirtækin og af þeim mun dómnefnd skera úr um hvert þeirra ber sigur úr bítum og fær titilinn markaðsfyrirtæki ársins. Viðkomandi fyrirtæki hlýtur nafnbótina í tvö heil ár sem þar sem verðlaunin eru veitt annað hvert ár á móti markaðsmanneskju ársins.


Verðlaunin eru veitt fyrirtækjum sem hafa verið áberandi í markaðsmálum á tímabilinu og sannað sýnilegan árangur af markaðsstarfi þeirra. Við ákvörðun um verðlaunahafa er tekið mið af fagmennsku í markaðsstarfi og að fjárhagslegt öryggi sé til staðar.


Nú er hægt að senda inn tilnefningar og tökum við á móti tilnefningum til 11.nóvember næstkomandi. Að tilnefningartímabili loknu hefur dómnefnd störf og velur efstu fimm fyrirtækin sem dómnefnd aflar ítarelgri gagna um ásamt því að fyrirtæki fær tækifæri til að kynna sitt markaðsstarf ítarlega fyrir dómnefnd.


Dómnefndin er skipuð fulltrúum úr stjórn ÍMARK, atvinnulífinu og háskólasamfélaginu með þverfaglega þekkingu og reynslu í huga.


Dómnefndina í ár skipa:

Ágústa Johnson - Framkvæmdastjóri / Hreyfing

Berlgind Rán Ólafsdóttir - Framkvæmdastýra / Orka náttúrunnar

Dr. Eyþór Jónsson - Akademias / Lektor við Viðskiptaháskólann í Kaupmannahöfn

Guðmundur Gunnarsson - Ritstjóri / Fréttablaðið

Halldór Harðarsson - Meðeigandi / Brú Strategy

Hrefna Sigfinnsdóttir  - Framkvæmdastjóri / Credit Info

Katrín M. Guðjónsdóttir - Formaður stjórnar / ÍMARK

Ragnar Már Vilhjálmsson - Manhattan marketing / Háskólinn á Bifröst

Svanhvít Friðriksdóttir - Almannatengsla ráðgjafi


Share by: