Um 400 innsendingar bárust fyrir Lúðurinn 2023 í 16 flokkum og er um metfjölda innsendinga að ræða.
Dómnefnd hefur lokið störfum en veitt eru verðlaunin fyrir frumleg, skapandi og snjöll verkefni sem talin eru framúrskarandi.
Verðlaunahátíð Lúðursins 2022 fer fram þann 1. mars í Háskólabíó og er miðasala á ÍMARK daginn og Lúðurinn hafin inn á Tix.is hér.
Dómnefndina í ár skipa:
Katrín M. Guðjónsdóttir- ÍMARK/Formaður dómnefndar
Agga Jónsdóttir- Pipar TBWA
Árni Reynir Alfreðsson- Krabbameinsfélagið
Einar Ingi Sigmundsson- ENNEMM
Fura Jóhannesdóttir- Huge
Högni Valur Högnason- Hér og nú
Jón Ari Helgason- Brandenburg
Magnús Magnússon- Peel
Rakel Björg Guðmundsdóttir- Atlantsolía
Rakel Tómasdóttir- Cirkus
Rósa Hrund Kristjánsdóttir- Hvíta húsið
Í dómnefnd Lúðursins sitja að jafnaði 11 aðilar. Fimm aðilar skulu tilnefndir af SÍA og skal hver og einn gegna stöðunni ,,Creative Director" eða ,,Art Director". Fjórir aðilar skulu tilnefndir af ÍMARK, auk formanns dómnefndar sem leiðir dómnefndarstörf og hefur ekki atkvæðisrétt. Að lokum verða tveir fulltrúar frá auglýsingastofum sem að tilheyra ekki SÍA, og skulu þeir gegna stöðu ,,Creative Director" eða ,,Art Director".
Fyrst og fremst er það hlutverk dómnefndar að skila af sér niðurstöðu sem almenn sátt ríkir um innan dómnefndar. Dómnefnd hefur umtalsvert frelsi um túlkun efnisatriða og má beita ýmsum aðferðum til að komast að niðurstöðu, svo lengi sem almenn sátt dómnefndar sé þar að baki. Er það á ábyrgð formanns að tryggja að svo sé.