Bernd Schmitt Customer Experience and Happniess Lecture Highlights
Bernd Schmitt
Bernd Schmitt er eftirsóttur fyrirlesari og ráðgjafi, hann er forstjóri The EX Group og ACI, rithöfundur og prófessor í alþjóðlegum...
Bernd Schmitt
Bernd Schmitt er eftirsóttur fyrirlesari og ráðgjafi, hann er forstjóri The EX Group og ACI, rithöfundur og prófessor í alþjóðlegum viðskiptum við Columbia Business School í New York ásamt því að stýra miðstöð háskólans The Center on Global Brand Leadership.
„Columbia Business School's Center on Global Brand Leadership is the leading forum worldwide for executives and researchers addressing the challenges of building and sustaining great brands."
Bernd er vel þekktur fyrir skrif sín og kenningar á sviði markaðssetningar, vörumerkjastjórnunar og stefnumótunar þar sem hann fókusar á sköpunargáfu, nýsköpun og upplifun viðskiptavina. Hann hefur skrifað átta bækur sem hafa verið þýddar á yfir 20 tungumál.
Helstu bækur hans eru;
Experiential Marketing (1999),
Customer Experience Management (2003),
Big Think Strategy (2007),
Happy Customers Everywhere (2012).
Rannsóknir Bernd Schmitt hafa verið birtar í öllum helstu fagritum, svo sem Journal of Marketing, Journal of Marketing Research, Marketing Science, Journal of Consumer Research and Journal of Consumer Psychology. Það birtast reglulega greinar eftir hann í The New York Times, the Asian Wall Street Journal, og the Financial Times, og hann hefur komið fram í mörgum viðskiptatengdum þáttum, t.d. á BBC, CNBC, CNBC-Asia, CNN, NHK og CNNfn's "Business Unusual".
The EX Group, fyrirtækið þar sem Bernd Schmitt er forstjóri, er alþjóðlegt fyrirtæki sem sérhæfir sig í fyrirtækjaráðgjöf á sviði viðskiptastjórnunar, markaðssetningar, nýsköpunar með fókus á upplifun viðskiptavina.
„The EX Group provides customer-focused solutions to your critical business and marketing issues. Our work draws on the pioneering research on customer experience and customer profitability."
Bernd Schmitt hefur unnið með stórum sem smærri fyrirtækjum, og til að nefna nokkur stórfyrirtæki sem hafa leitað til hans þá eru það m.a.; Microsoft, American Express, Volkswagen, Sony, Samsung, Hilton Hotels, Ogilvy & Mather, Sephora, Vodafone Group, Vogue Magazine, Procter & Gamble, Absolut, Cadbury-Schweppes, Avon, Audi.
Bernd er einnig forstjóri ACI, sem eru nýstofnuð samtök í Singapore sem fókusa á viðskipti og neytendahegðun á Asíumarkaði. Fyrstu sinnar tegundar í Asíu.