Lúðurinn 2009

Smelltu hér til að skoða hvaða auglýsingar lenntu í úrslitum fyrir árið 2009.

Verðlaunaafhending fór fram 5. mars 2010 á Íslenska markaðsdeginum og var haldin á Hilton Reykjavík Nordica.

Lúðurinn, íslensku auglýsingaverðlaunin, er opinn öllum sem stunda gerð eða
dreifingu auglýsinga á Íslandi. Tilgangur keppninnar er að vekja athygli á vel gerðum
auglýsingum og auglýsingaefni og veita aðstandendum þess verðskuldaða athygli.

Verðlaun eru veitt í 15 flokkum.
Veitt verða verðlaun í eftirtöldum flokkum:

Sjónvarpsauglýsingar
Útvarpsauglýsingar
Dagblaðaauglýsingar
Tímaritaauglýsingar
Vöru- og firmamerki
Umhverfisgrafík
Veggspjöld
Auglýsingaherferðir
Markpóstur
Viðburðir (event)
Vefborðar
Opinn flokkur
Val fólksins
Almannaheillaauglýsingar
- auglýsingar í ljósvakamiðlum (sjónvarps- og útvarpsauglýsingar) 
- auglýsingar í prentmiðlum/öðrum miðlum

Dómnefnd er  skipuð 21 aðila frá ÍMARK, SÍA, FÍT, Orðspori og Félagi kvikmyndagerðarmanna. Dómnefndin fer yfir allar innsendingar í tölvu, í tveimur umferðum. Í fyrri umferð er hverri innsendingu gefið stig, og í seinni umferð eru 5 bestu auglýsingarnar valdar.


Heimilisfang, símanúmer o.þ.h

ÍMARK, félag íslensks markaðsfólksLISA
Suðurlandsbraut 30, Pósthólf 8189 - 128 Reykjavík, Sími: 511 4888, imark@imark.is 
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli

Leit

Leit Leit
Leturstærð